Sálfræði og líðan
Líkami og hugur
Um Önnu
Anna er löggiltur sálfræðingur með nokkra ára starfsreynslu.
Eftir að hafa lokið gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og framhaldsnámi í Hagnýtri Sálfræði frá Háskóla Íslands, hóf Anna starfsferil sinn á Landspítalanum, geðsviði, og vann einnig á sálfræðistofunni Domus Mentis.
Anna vinnur með ungu fólki og fullorðnum sem vilja fá stuðning við til dæmis kvíða, kulnun, samskiptavandamál, áföll og depurð.
Anna starfar sem sálfræðingur í Kaupmannahöfn og á Íslandi. Anna getur tekið á móti fólki í Kaupmannahöfn og einnig í fjarviðtölum í gegnum fjarfundarbúnaðinn Kara Connect.
Meðferðarfókus
Nálgun Önnu er samþætt — byggt á gagnreyndum aðferðum.
Anna nýtir meðferðir eins og HAM (hugræna atferlismeðferð), ACT (acceptance and commitment therapy) og CPT (cognitive processing therapy).
Að skilja rætur langvarandi kvíða og byggja upp varanleg verkfæri til að grípa í til að róa ofhlaðið taugakerfi.
Aðferðir við að ná tökum á áfallareynslu með hugrænni úrvinnslu meðferð. Að skapa öryggi fyrst, síðan fara smám saman í átt að samþættingu á hraða sem þér líður vel við.
Að bera kennsl á streitu mynstur og endurbyggja samband vinnu, hvíldar og sjálfsvirðingu.
Að fá stuðning í gegnum miklar breytingar í lífinu getur verið mikilvægt, að fá aðstoð við að finna fastan grunn þegar allt er á hreyfingu.
Hafðu samband
Að taka fyrsta skrefið er oft það erfiðasta — og mikilvægasta. Hafðu samband til að skipuleggja tíma eða spyrja spurninga.
Ég býð upp á einstaklings viðtöl, ég er staðsett á tveimur stöðum í Kaupmannahöfn, Fredriksberg og Vesterbro. Einnig býð ég upp á fjarviðtöl í gegnum öruggan fjarfundarbúnað Kara Connect.
Vinsamlegast athugið að afbóka þarf tíma með minnst 24 klukkustunda fyrirvara. Sé það ekki gert telst tíminn nýttur og greiddur.
Fylgsta trúnaðar er gætt í viðtölum.